kvikmyndun:
Hestar
Það þarf ekki forfallna hestamanneskju til þess að kunna að meta fegurð hestsins. Þeir bera einfaldlega tignarlega fágun sem að allir með smá hjarta skynja og sjá.
Hvað má bjóða þér:
kvikmyndataka:
Mikil reynsla af kvikmyndun af hestum hvort sem er úti í haga, inni í húsi eða á keppnisvelli. Hef tekið upp ógrynni af allskyns viðtölum og og viðburðum.
Viltu læra:
Langar þig að ná betri myndbrotum! Kvikmyndun lítur svipuðum lögmálum og myndataka. Það er hinsvegar mikilvægt að vita í hverju munurinn liggur til þess að fá gott myndefni.
Skoðið heimildarmyndina mína, Úr haga í hendur:
Heimildarmyndin, Úr haga í hendur, var útskriftarverkefni mitt úr Kvikmyndatskóla Íslands. Myndin var sýnd á fjórum kvikmyndahátíðum, Stockfish film festival, Women over 50 film festival, IceDoc film festival og Feminist Film festival.
lifandi kynning:
Það er sagt að ljósmynd geti verið á við þúsund orð. Lifandi myndefni getur dregið upp skýra og skarpa frásögn af því sem þú vilt koma á framfæri.
