Kvikmyndun Hestar

Góð reynsla af kvikmyndun:

Það þarf ekki að vera svo dýrt að búa til fallegt myndband. Hvort sem aðalmyndefnið er hesturinn þinn, þú eða sú starfsemi sem starfrækt er, gefur lifandi efni áhorfanda tækifæri til þess að kynnast ykkur. 

Ég hef kvikmyndað hesta síðustu þrjú ár og eru þeir eitt af þeim viðfangsefnum sem ég þreytist aldrei á. Einnig hef ég góða reynslu af því að taka viðtöl og gera umfjallanir:

Mynd segir margt, myndband ennþá meira:

Með aukinni tækni er hægt að þjappa saman framleiðsluferlinu og þannig gera gott sjónrænt efni án mikils tilkostnaðar. En það þýðir líka að mjög góð tæknileg þekking þarf að vera til staðar. 

Ég útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands í febrúar 2021 úr skapandi tækni og hef jöfnum höndum unnið við gerð myndbanda. Hef staðgóða þekkingu á kvikmyndatöku, drónatökum, klippingu, hljóðvinnslu og litaleiðréttingu. 

hafðu samband:

Með gleði er ég til í að skoða með þér það sem þig langar að koma á framfæri og gera tilboð í verkið:

Dæmi um stutt vídeó: