Um:

Það er í lagi að skipta um hest í miðri á!

Hversu undarlegt sem það kann að virðast þá stefndi ég í undirvitundinni alltaf á kvikmyndagerð. Það tók bara góðan tíma í að komast upp á yfirborðið.

Eftir að hafa farið frá manni og fyrirtæki 2013 hafði ég ekki hugmynd um hvað ég vildi gera. Það má líka segja að ég hafi þurft tíma til þess að safna sjálfri mér saman. 

Við tók tími þar sem ég var alveg týnd. Ég tók að mér ýmis störf og meðal annars fór ég norður á Strandir og vann hjá frænda mínum í ferðaþjónustu sem hann rak. Eitt kvöldið ákvað ég að gera stutt vídeó við lag sem að ég hafði hljóðritað nokkru áður og að gera þetta myndband varð eitt af mínum sælustundum. Þegar höfuðið fær að vinna og tíminn flæðir í vinnusælu var eitthvað sem ég hafði ekki upplifað lengi. Á þessum tímapunkti hvarlaði það samt sem áður ekki að mér að þetta væri einhvað sem hægt væri að gera í atvinnuskyni. Það leið töluverður tími þar til að ég vogaði mér að gera aftur eitthvað líkt þessu. Það er nefnilega stundum erfitt að endurskapa svona sælustundir, hræðslan við að næst verði þetta ekki eins gaman og þá eyðileggi þessa fallegu minningu sem gaf mér gleði að leita í á erfiðum stundum. Ég flutti til Danmerkur, vann þar á ferðaskrifstofu og fannst það alveg skelfilegt. Þegar við frænkur ákváðum að ferðast um heiminn 2018 þá ákvað ég að kanna frekar þessa gleði mína við vídeógerð og það varð úr að oftar en ekki tókum við upp á iphone og klipptum í imovie. Ég elskaði að búa til sögulínur, klippa og hljóðvinna. Það var þá einhvern veginn eðlilegt framhald að fara við byrjun árs 2019 í Kvikmyndaskóla Íslands á tæknibraut. Aldrei á ævinni hef ég notið náms eins mikið. Og þetta er pínulítið brjálað fyrir konu á miðjum aldri að fara að læra fag sem inniheldur orðið tækni!

Þetta lá frábærlega fyrir mér, ekki vegna þess að ég var svo snjöll tæknilega heldur vegna þess að ég þreyttist aldrei á að spyrja, lesa og leita mér upplýsinga. 

Ég útskrifaðist í Febrúar 2021 en útskrift seinkaði vegna covidsfársins.

Þakklæti og ást!

Þurý Bára Birgisdóttir

Markmið:

Búa til efni fyrir samfélagsmiðla, sjónvarp og kvikmyndahús.

sýn:

Framleiða efni sem að hefur fræðslu- og skemmtanagildi.

Sérþekking: